Skip to main content

Leita að framúrskarandi konum í atvinnulífinu

LífiðThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.Fyrst birt 25. nóv 2021 13:24Uppfært 25. nóv 2021 13:27

Félag kvenna í atvinnulífinu (FKA) leitar þessa dagana að tilnefningum frá almenningi um konur sem skarað hafa fram úr atvinnulífi. Verðlaunað er í þremur flokkum.


Í fyrsta lagi er veitt viðurkenning FKA fyrir vel unnin störf í þágu atvinnureksturs kvenna eða fyrir að hafa verið konum í atvinnulífi sérstök hvatning eða fyrirmynd.

Í öðru lagi eru veitt hvatningarverðlaun til konu í atvinnulífinu fyrir athyglisvert frumkvæði eða nýjungar í atvinnurekstri. Lára Vilbergsdóttir, verslunarrekandi á Egilsstöðum, hlaut þá viðurkenningu þegar hún var afhent í fyrsta sinn árið 2000.

Í þriðja lagi er þakkarviðurkenning veitt konu fyrir eftirtektarvert ævistarf sem stjórnanda í atvinnulífinu.

Hulda Ragnheiður Árnadóttir, forstjóri Náttúruhamfaratryggingar Íslands er formaður dómnefndar í ár en í henni sitja meðal annars Veiga Grétarsdóttir, kayakræðari og fyrirlesari en hún bjó um tíma á Reyðarfirði.

Tilnefnt er í gegnum heimasíðu FKA. Frestur til þess rennur út í dag. Verðlaunin verða veitt í janúar.