Leitað að hagmæltum Bronco-eiganda

Bændablaðið leitar nú að seljanda Bronco-jeppa sem hugðist auglýsa bifreið sína í blaðinu.

Á Facebook-síðu blaðsins birtist fyrr í dag ákall um hjálp við að hafa uppi á seljanda Bronco-bifreiðar.

Smáauglýsingadeild blaðsins, sem er einn vinsælasti hluti þess, hafði borist bréf frá manni sem vildi selja Bronco-bifreið, árgerð 1966.

Smáauglýsing var vönduð í formi ferskeytlu:

Góðan jeppa get ég selt
gamall vagn og traustur
hefur aldrei verið velt
og virðist heilsuhraustur

En svo mikið virðist seljandinn hafa hugsað um vísuna að honum láðist að láta nafn sitt sitt fylgja, eða nokkrar aðrar upplýsingar um hvernig hafa mætti samband við hann. Hins vegar berast böndin austur á land þar sem á póststimpli kemur fram að bréfið sé póstlagt á Egilsstöðum.

Þess vegna leitar Bændablaðið nú að hinum hagmælta Bronco-eiganda.

Mynd: Bændablaðið


Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar