Líf og fjör á Tæknidegi fjölskyldunnar: Myndir

taeknidagur
Fjöldi gesta sótti Tæknidag fjölskyldunnar sem haldinn var í Verkmenntaskóla Austurlands fyrir skemmstu. Markmið dagsins var að vekja athygli á tæknigreinum, vísindum og iðnaði í nærumhverfinu.
 
Meðal þess sem var fyrir augu var krufning á mink sem Þórður Júlíusson, skólameistari VA, stýrði. Gestum leist misvel á blóðið sem þar rann en Þórður gekk þó ekki alla leið í krufningunni.

Fjölmörg stór fyrirtæki voru með sýningarbása og fyrirlestrar og sýningar frá nemendum og kennurum Verkmenntaskólans.

Fjöldi gesta lagði leið sína í Verkmenntaskólann þennan dag, þeirra á meðal ljósmyndari Austurfréttar.
 
taeknidagurtaeknidagurtaeknidagurtaeknidagurtaeknidagurtaeknidagurtaeknidagurtaeknidagurtaeknidagurtaeknidagurtaeknidagurtaeknidagurtaeknidagurtaeknidagurtaeknidagurtaeknidagurtaeknidagurtaeknidagurtaeknidagur
 

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar