Lífið er verk í vinnslu og sýningar að hefjast
„Það hafa fimm austfirskir listamenn unnið hjá okkur undir hatti Skapandi sumarstarfa með mjög góðum árangri, tekið þátt í hinu og þessu víðs vegar bæði í Fjarðabyggð og Múlaþingi líka og nú verður afraksturinn gerður ljós,“ segir Jóhann Ágúst Jóhannsson, forstöðumaður Menningarstofu Fjarðabyggðar.
Annað kvöld opnar sýning þeirra fimm sem unnið hafa að list sinni í allt sumar undir leiðsögn Viktoríu Blöndal en sýnt verður í gömlu Netagerðinni í Neskaupstað fram á sunnudag. Sú sýning er tæknilega hluti af listahátíðinni Innsævi sem verið hefur í gangi um hríð í Fjarðabyggð.
„Verkin eru jafn mörg og misjöfn og fólkið sjálft,“ segir Jóhann. „Þau hafa gert víðreist um sveitarfélagið allt og koma auðvitað frá mismunandi stöðum líka. Þau hafa, fyrir utan að vinna að sínum eigin verkum, komið að verkefnum á hinum ýmsu hátíðum í sumar og þau voru meira að segja á LungA að læra og kynnast verkum annarra. Þau tóku þátt í Innsævi og Tónaflóði og svo má lengi nefna. Ég hvet allt listhneigt fólk til að líta við og sjá hvað unga listafólkið okkar er að gera góða hluti.“
Unga fólkið sem unnið hefur að listsköpun í allt sumar í Fjarðabyggð undir hatti Skapandi sumarstarfa. Þau sýna verk sín næstu dægrin. Mynd Fjarðabyggð