Listafólk á Seyðisfirði gefur verk til styrktar Úkraínumönnum

Meira en 20 listamenn frá Seyðisfirði munu sameinast í Skaftfelli á sunnudag á listaverkasölu þar sem ágóðinn rennur til mannúðarstarfs í Úkraínu.

„Ég fór af stað því mér varð mjög brugðið við árásina. Ég þekki fólk frá Úkraínu sem búið hefur hér á Seyðisfirði.

Stríðsátök eru alltaf slæm, en þau koma meira við mann þegar maður þekkir fólk sem verður fyrir barðinu á þeim og ég vildi geta gert eitthvað fyrir það,“ segir Julia Martin, forstöðumaður hjá Skaftfelli.

Nú þegar hafa 24 listamenn, búsettir á Seyðisfirði, ákveðið að gefa eitt eða fleiri verk til málefnisins. Þá gefur Skaftfell ágóða af völdum veggspjöldum og bókum sem verða til sölu.

Salan verður í sýningarsal Skaftfells á sunnudag milli klukkan 15 og 18. Söfnunarféð rennur óskipt til Rauða krossins, eyrnamerkt mannúðarstarfi við Úkraínu.

„Sýningin sem nú er uppi lýkur á laugardag og sú næsta verður ekki sett upp fyrr en eftir helgi. Þegar við sáum að sýningarsalurinn yrði tómur einn dag settum við stefnuna á að gera eitthvað.

Við sendum því skilaboð á fólk í bænum eða næsta nágrenni sem við vitum að hafa verið virkir í listsköpun. Þetta er ekki endilega atvinnulistafólk enda skiptir það ekki máli í þessu samhengi, heldur snýst þetta um að nota sköpunargáfuna til að hjálpa.

Þetta snýst um að sameina þetta skapandi samfélag og safna fé með að gefa vinnu okkar, um leið og við sköpum samfélagsanda með að hittast og gera þetta saman. Við viljum sýna stuðning með þessu og minna á að sama hvort þú gefur tíma, pening eða vinnu þá er hægt að hjálpa,“ segir Julia.

Hún segir stefnt að því að taka myndir af þeim verkum sem ekki seljast á staðnum og setja á Facebook-síðu Skaftfells að loknum viðburði, þannig þeim sem ekki komast á Seyðisfjörð á sunnudag gefist tækifæri til að taka þátt.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.