Ljósmyndasýning um austfirskt mannlíf opnuð í Minjasafni Austurlands
Myndir úr safni Önnu Ingólfsdóttur og Sigurðar Aðalsteinssonar eru uppistaðan í nýrri ljósmyndasýningu sem var opnuð í Minjasafni Austurlands í gær. Sýningin er samstarfsverkefni Minjasafnsins, Héraðsskjalasafns Austurlands og Ljósmyndasafns Austurlands en þema hennar er austfirskt mannlíf.
Fimmtán myndir eru á sýningunni, allar teknar á Austurlandi, flestar á síðasta áratug 20. aldar. Bæði Anna og Sigurður hafa um árabil verið fréttaritarar á Austurlandi en Sigurður er í hópi fréttaritara Agl.is. Sýningin verður opin fram í apríl og er aðgangur ókeypis.
Frá því í upphafi febrúar á þessu ári hefur á vegum Héraðsskjalasafns Austfirðinga og Ljósmyndasafns Austurlands verið unnið að verkefni við skönnun, skráningu og frágang ljósmynda. Myndirnar á sýningunni sem opnar í dag er meðal þess myndefnis sem unnið hefur verið með á fyrsta mánuði verkefnisins.
Meginmarkmið þess er að gera safnkost Ljósmyndasafns Austurlands aðgengilegri fyrir áhugasama og er gert ráð fyrir að síðar verði einhver hluti safnsins gerður aðgengilegur á veraldarvefnum. Sá áfangi verkefnisins sem nú er í gangi nær þó ekki til slíkrar birtingar.
Samhliða sýningunni á jarðhæð Safnahússins opnar önnur ljósmyndasýning á vef Héraðsskjalasafns Austfirðinga (www.heraust.is). Myndirnar sem þar birtast eru alls 20 talsins og koma þær úr safni Sigurðar Blöndal á Hallormsstað. Efni myndanna er fjölbreytt en þar gefur m.a. að líta myndir frá Héraðsvökum og úr starfi Skógræktar ríksins. Flestar eru myndirnar teknar á Fljótsdalshéraði og er meginhluti þeirra tekin á 8. áratug 20. aldar.
Þriðja sýningin opnaði í Safnahúsinu fyrr í þessum mánuði. Bókasafn Héraðsbúa hefur sett upp sýningu um Einar H. Kvaran rithöfund. Einar var fæddur í Vallanesi á Völlum þann 6. desember 1859 og var einn af brautryðjendum raunsæisstefnu í íslenskum bókmenntum. Hann skrifaði skáldsögur, smásögur, ljóð og leikrit og má þar þekktast nefna Lénharð fógeta. Þessi sýning var fyrst sett upp í Þjóðarbókhlöðunni í desember 2009 í tilefni af því að að 150 ár voru liðin frá fæðingu Einars. Sýninguna má skoða í stiganum á leiðinni upp á bókasafn og rit hans liggja einnig þar frammi.