LME frumsýnir Go.com Air í kvöld
Leikfélag Menntaskólans á Egilsstöðum, LME, frumsýnir í kvöld kl. 20 leikritið Beðið eftir Go.com Air, (Go-dot-com Air) eftir Ármann Guðmundsson. Leikritið fjallar um hóp Íslendinga sem eru staddir í flugstöð erlendis á leið heim. Þeir lenda í ýmsum hrakningum, sem skapast af seinkun á fluginu.
Ergelsi í hópnum innbyrðis og við starfsmenn lággjaldaflugfélagsins og öryggisverði skapar spennu hjá sögupersónunum. Meðal þeirra eru kerfiskall úr ráðuneyti, flughræddur maður, drykkfelld móðir og dóttir hennar sem ferðast fyrir fermingarpeninga stúlkunnar og fleiri. Allt er þetta fólk að bíða eftir flugvél sem aldrei virðist ætla að komast í loftið.
Sýnt verður 22., 24., 26., 29. og 30. mars og 1. apríl. Allar sýningar verða í Valaskjálf og hefjast kl. 20. Miðasala er í símum 8659770 og 8973849.
Mynd: Ármann Guðmundsson.