Loka farmstöð á Seyðisfirði
Lífið • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 07. sep 2009 09:53 • Uppfært 08. jan 2016 19:20
Samskip og Flytjandi lokuðu sameiginlegri farmstöð landflutninga á Seyðisfirði í síðustu viku. Samkvæmt upplýsingum Austurgluggans kom lokunin starfsmanni farmstöðvarinnar í opna skjöldu. Eitt stöðugildi tapast. Bæjarráð Seyðisfjarðarkaupstaðar harmar ákvörðunina og lýsir furðu yfir að ekki hafi verið gert aðvart um fyrirhugaða lokun áður en af henni varð.
-
(Myndin tengist ekki Seyðisfirði)