Málstofu um heimagrafreiti frestað
Málstofu um heimagrafreiti, sem halda átti í Kirkjuselinu í Fellabæ í dag, hefur verið frestað vegna veðurs.Til stóð að dr. Hjalti Hugason, prófessor í kirkjusögu við Háskóla Íslands, myndi ræða um þær vinsældir sem heimagrafreitir nutu á tímabilinu 1880-1960, ekki síst á Austurlandi þar sem fjölda þeirra er að finna.
Aftakaveður er víða um land og ekki ferðafært. Þess vegna kemst Dr. Hjalti ekki austur að þessu sinni. Búið er að ákveða að halda fyrirlesturinn 19. október.
Mynd úr safni.