Margt forvitnilegt á Cittaslow-markaðnum á Djúpavogi

„Það er aðeins byrjað að hringja og forvitnast hjá okkur en það fer auðvitað eftir umfangi hjá hverjum og einum hversu margir komast að þetta árið,“ segir Heiðdís Guðmundsdóttir hjá Múlaþingi.

Heiðdís hefur umsjón með hinum árlega Cittaslow-kynningarmarkaði sem fram fer í Löngubúð a Djúpavogi síðasta sunnudag næsta mánaðar þann 25. september. Sá dagur er jafnframt alþjóðlegur hátíðardagur allra bæja sem aðild eiga að Cittaslow hreyfingunni sem snýst í grunninn um að taka lífinu með ró og njóta þess sem finnst nærri.

„Markaðurinn hefur verið haldinn síðustu árin ef undan er talið 2020 þegar hætt var við vegna Covid en hann fór fram í fyrra, gekk mjög vel og fjölmargt forvitnilegt að skoða og kynna sér,“ segir Heiðdís sem hvetur alla sem vilja kynna sig og sitt á Djúpavogi og í nágrenni að panta sér bás á kynningarmarkaðnum. Kynningin er einskorðuð við framleiðslu, starfsemi eða menningu í bænum og er ætlað að koma á framfæri hversu mikill fjölbreytileiki fyrirfinnst í ýmis konar starfsemi bæjarbúa.

Bæjarbúar á Djúpavogi engir aukvisar þegar kemur að ýmis konar framleiðslu og ókunnum gæti komið á óvart hversu mikil gerjun á sér þar stað. Mynd Óskar Ragnarsson

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.