Markaðssetja Borgarfjörð með myndbandi

Nýtt myndband, ætlað til að markaðssetja Borgarfjörð eystra, var frumsýnt á íbúafundi í gærkvöldi. Heimamenn segjast vilja styrkja vörumerki byggðarinnar.

„Okkur hefur fundist gaman að sjá það sem Visit Faroe Islands og Íslandsstofa hafa sent frá sér og störfum með markaðssetningu Austurlands, en okkur fannst Borgarfjörðurinn líka verðskulda að vera sér.

Við vildum styðja við sterkara vörumerki fyrir Borgarfjörð. Víknaslóðir eru orðnar nokkuð þekktar en það eru kannski færri sem þekkja hvernig mannlífið er eða hvernig er að vera hér.

Út frá þessu unnum við. Við vildum fá fólk til að koma og búa hér en um leið sannfæra það um að heimsækja staðinn. Við vildum reyna að fanga andann á staðnum,“ segir Árni Magnús Magnusson.

Ferðamálahópur Borgarfjarðar stendur að baki myndbandinu en hann, ásamt Hafþóri Snjólfi Helgasyni og Skúla Andréssyni héldu utan um gerð þess. Það var frumsýnt á íbúafundi í gærkvöldi.

„Ég hef alltaf tekið eftir áhugaverðum stöðum þegar ég er á ferðinni á Borgarfirði, því ég var líka að hugsa hvernig ég gæti styrkt mitt fyrirtæki. Við horfum á að myndbandið sé grunnur, síðan getum við klippt úr því styttri skot.“

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar