Markaður og sýning í Salthúsinu á Stöðvarfirði
Á dögunum bættist við nýjung í afþreyingu fyrir ferðamenn á Stöðvarfirði þegar Salthúsið opnaði formlega. Það eru frumkvöðlanir Magnús Sigurðsson og Einþór Skúlason sem einnig reka Gistihúsið Sólhól á Stöðvarfirði sem eiga frumkvæði að þessu verkefni. Um er að ræða 1000 m2 aflagt fiskvinnsluhús í hjarta bæjarins sem nýtt er á veturna sem geymsla fyrir húsbíla og fellihýsi en hefur staðið autt á sumrin, hugmyndin var að gæða húsið lífi enda stendur það við aðalgötuna í miðjum bænum skammt frá veitingahúsinu Brekkunni og Galleri Snærós.
Fjöldi fólks heimsækir Stöðvarfjörð á hverju sumri og er það Steinasafn Petru sem dregur flesta að en auk þess og annarar afþreyingar í bænum geta nú ferðamenn heimsótt Salthúsið og kynnst Stöðvarfirði enn betur. Í húsinu er glæsilegur markaður, auk ljósmyndasýningar sem sýnir fiskverkun á Stöðvarfirði í gegnum árin, video verk frá Gjörningaklúbbnum ILC Thank You og sýning á myndum frá náttúru Stöðvarfjarðar.
Ýmislegt fleira verður í boði í sumar og ýmsar uppákomur í húsinu þar sem húsnæðið er mjög stórt eru möguleikarnir miklir. Þóranna Lilja Snorradóttir formaður Menningar-, íþrótta- og ferðamálanefndar opnaði húsið formlega og bauð fólk velkomið. Markaðurinn verður opin frá kl. 10:00-16:00 alla daga vikunnar í sumar frá til 23 ágúst. Frá þessu greindi á vef Fjarðabyggðar og er myndin þaðan sömuleiðis.