Metþátttaka í Orkubóndanum á Egilsstöðum
Lífið • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 11. jan 2010 16:36 • Uppfært 08. jan 2016 19:21
Um 140 manns hafa skráð sig á námskeiðið Orkubóndann sem hefst á Egilsstöðum á morgun og er þetta metþátttaka á námskeiðinu. Á meðal þátttakenda eru um 70 framhaldsskólanemar.
Orkubóndinn er fyrir áhugafólk um virkjun orku, einstaklinga, fyrirtæki, landeigendur, bændur og alla sem vilja beisla orkuna heima fyrir, en lögð er áhersla á að gera efnið skemmtilegt og aðgengilegt öllum og er námskeiðsgjaldið 3000 krónur fyrir tvo daga. Á námskeiðinu er fjallað um virkjun af ýmsu tagi og í framhaldi af því eiga þátttakendur kost á að fá aðstoð við næstu skref, hvort sem um er að ræða virkjun bæjarlækjar, hitareits, vindgnauðs, sólar eða fjóshaugs.
Orkubóndinn hefur verið haldinn á þremur stöðum á landinu nú þegar og bera góðar viðtökur merki um mikinn áhuga á virkjun orku og sjálfbærni meðal almennings, en 270 þátttakendur hafa verið á námskeiðinu til þessa.
Námskeiðið verður haldið á Hótel Héraði á Egilsstöðum 12. og 13. janúar kl. 10:00 – 16:30.