Músíkframleiðsla í Menningarmiðstöð

Ragnhildur Gísladóttir, Snorri Sigfús Birgisson og Benda slagverkshópurinn koma fram á sumarsólstöðutónleikum í Kirkju- og menningarmiðstöðinni Fjarðabyggð í dag. ImageBúast má við að frumsamið efni verði á boðstólnum þar sem bæði píanóleikarinn og söngkonan eru tónsmiðir. Pétur Grétarsson, Eggert Pálsson og Steef van Ossterhout mynda slagverkshópinn.

Tónleikarnir hefjast klukkan 17:00. Miðaverð er 1.500 kr, en frítt er fyrir börn.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar