Munir frá einvígi Spassky og Fishers á sýningu í Fellabæ
Munir frá einvígi Boris Spassky og Bobby Fisher um heimsmeistaratitilinn í skák árið 1972 eru til sýnis á sýningu sem opnaði í Fellabæ í síðustu viku.Gripirnir koma frá Davíð Péturssyni, sem lengi hefur safnað munum sem tengjast einvíginu. Tengdadóttir hans Sigrún Steindórsdóttir opnaði í fyrra fyrirtækið Rammalausnir í Fellabæ og þar eru munirnir til sýnis.
Davíð, sem bjó í Borgarfjarðarsveit, gerði sér ferð til Reykjavíkur sumarið 1972 til að sjá eina skákina í einvíginu. Uppistaðan í sýningunni eru myndir Halldórs Péturssonar, skopmyndateknara, sem fangaði einvígið. Tilviljun varð til þess að Davíð komst yfir eintök af þeim.
„Ég hafði hug á þessum tíma að komast á ball með Jóhönnu Guðjónsdóttur sem þá starfaði í Bókabúð Lárusar Blöndal. Það var þá hennar verk að sækja skopmyndir þær er Halldór birti í Morgunblaðinu daglega á þessum tíma og láta útbúa póstkort með þeim myndum til að selja meðan á einvíginu stóð en það var einmitt hennar hugmynd að fjöldaframleiða þau og selja.
Svo vildi það til að í veislunni miklu, þangað sem okkur var boðið, sat Halldór með okkur til borðs og hann áritaði öll póstkortin sem gefin voru út og þau hef ég átt allar götur síðan,“ rifjar Davíð upp í Austurglugga vikunnar.
Sýningin í Fellabæ verður að minnsta kosti opin framyfir 3. september að sögn Davíðs og það er ástæða fyrir því.
„Spassky gaf 21. skák þeirra félaga þann 1. september 1972 og þar með var sigurinn í höfn hjá Fischer. Svo var Veislan mikla, sem svo var kölluð, þann 3. september og mér finnst lágmark að sýningin verði opin framyfir þann tíma.“
Jens ásamt Guðmundi G. Þórarinssyni, fyrrum formanni Skáksambands Íslands, við opnun sýningarinnar. Mynd: Rammalausnir Sigrúnar
Lengri útgáfa viðtalsins birtist í Austurglugganum sem kom út í vikunni. Hægt er að panta áskrift hér.