Myndlistanámskeið í Sláturhúsinu
Menningarhús Gamla sláturhúsið á Egilsstöðum stendur fyrir myndlistanámskeiði um helgina. Á namskeiðinu kennir Kyuregy Alexandra Arguwovg mosaik og blandaða tækni.Nemendur á námskeiðinu læra að gera myndir úr mosaik og með blandaðri tækni. Mosaik verkin eru búin til með að klippa niður mosaik flísar og líma upp á platta, síðan er fúað milli masaik flísanna. Blönduð tækni felst í að ýmsir skólptúrar, teiknaðat myndir, klippimyndir og mosaik eftir atvikum eru límdir upp á oft stærri verk en mosaik myndirnar eru.
Kyuregy Alexandra Arguwovg er ættuð frá norðaustur Síberiu héraðinu Sakha í Jakutiu sem er 30 nsinnum stærra en Ísland. Mikill munur er það á mesta frosti sem getur farið niður í -67 gráður á celsíus og upp í +40 gráður.
Kyuregy er búin að búa á Íslandi í 44 ár og sinna list sinni, fimm á ár áður bjó hún í Moskvu og stundaði listnám. Þar kynntist hún íslenskum manni sínum Magnúsi Jónssyni sem er látin fyrir nokkru síðan og var að læra þar kvikmyndagerð á sama tíma.