Ný þáttaröð af Að austan í loftið
Ný þáttaröð af þáttunum Að austan, sem N4 sýnir um austfirsk málefni, hefst í kvöld. Rætt hefur verið við á annað þúsund Austfirðinga í þáttunum.N4 gerði fyrst sjónvarpsþættina Glettur um austfirsk málefni en þættirnir breyttust og fengu nýtt heiti árið 2016. Síðan hafa verið gerðir yfir 160 þættir með um 650 innslögum og rætt við á annað þúsund Austfirðinga.
Þættirnir nú eru gerðir í samvinnu N4 og Tókatækni í Eiðaþinghá sem tækni- og tökufólkið Hjalti Stefánsson og Heiður Ósk Helgadóttir reka.
„Það hefur verið frábært að vinna með Hjalta og Heiði við gerð þessa þátta, við höfum þeyst um Austurland þvert og endilangt, hitt afskaplega skemmtilegt, fræðandi og áhugavert fólk sem þar býr og starfar. Kannski er ekki ólíklegt að tíundi hver Austfirðingur hafi verið tekinn tali í þáttunum,“ segir María Björk Ingvadóttir framkvæmdastjóri N4 og umsjónarkona þáttanna Að austan.
Þættirnir eru frumsýndir á fimmtudagskvöldum klukkan 20:00 og fer nýr þáttur í loftið á tveggja vikna fresti. Í þættinum í kvöld verða myndir frá flugsýningu á Egilsstöðum í sumar, matarvagninn við Hengifoss heimsóttur, sýnt frá hjólreiðakeppninni Tour de Ormurinn og rætt við hótelstjóra Hildibrand í Neskaupstað.
Þættirnir eru styrktir af sveitarfélögum og fyrirtækjum á Austurlandi sem María Björk segir skipta miklu máli. „Öll sveitarfélög á Austurlandi hafa verið með frá upphafi þessarar þáttagerðar sem sýnir greinilega mikinn skilning á gildi fjölmiðlunar af svæðinu.“