Nýtir silfurbergið í listsköpun
„Leið í gegnum sólarstein“ er yfirskrift nýrrar sýningar sænska listamannsins Johans F. Karlssonar sem opnuð verður í Skaftfelli á Seyðisfirði í dag.Johan hefur undanfarnar vikur dvalið í gestavinnustofu Skaftfells. Þar hefur hann gert tilraunir, út frá listrænu sjónarmiði, með náttúrulega skautunar- og tvíbrotseiginleika íslenska silfurbergsins.
Með sýningunni og áframhaldandi rannsóknum stefnir hann á að draga fram þekkingu, sem að einhverju leyti hefur glatast, á hvernig mannkynið hefur sigrast á umhverfi sínu með fornri siglingatækni sem hverfist um rýmisskynjun og afstöðu gagnvart skilyrðum ljóss.
Í verkunum á sýningunni er sett fram tilraunakennd nálgun við viðfangsefnið: þau eru innblásin af ljósinu sem er einkennandi fyrir kristalinn og eiginleika hans, sem skapar tvöfaldamynd: skuggamynd. Hún gerir áhorfendum kleift að ímynda sér aðra vídd auk þess sem hún tengist hugmyndinni um tvíhyggju og gefur þannig í skyn tvenns konar nærveru eða tvo staði á sama tíma.
Upplifunin um tvöfalda mynd getur þannig virkjað líkamsvitund og fært manninum undirvitund sem tengist veruleika handan tíma og rúms og leiðir áhorfandann inn í aðra heima. Þannig getur sýningin í heild verið hugsuð sem ferðalag um tvær samliggjandi leiðir þar sem maðurinn finnur sameiginleg sambönd innan hins efnislega og óefnislega, línur og yfirborð, ljós og myrkur, að því er fram kemur í tilkynningu.
Sýningin opnar klukkan 18:00 í dag en hún er hluti af hátíðinni List í ljósi sem haldin er á Seyðisfirði um helgina. Leiðsögn með Johan um sýninguna er í boði klukkan 15:00 á morgun. Sýningin er opin til 12. mars. Sýningarstjóri er Julia Martin.