Öskudegi breytt í Fjölgreindarleika á Reyðarfirði

Vegna færðar gegnu börn á Reyðarfirði ekki á milli fyrirtækja til að syngja og fá gotterí að launum, eins og venjan er í gær öskudag, heldur var slegið upp Fjölgreindarleikum í grunnskólanum.

„Á leikunum vinna nemendur saman að ýmsum þrautum, þvert á bekki,“ segir Ásta Ásgeirsdóttir, skólastjóri.

Um 200 nemendum skólans var skipt upp í 16 hópar þar sem tveir leiðtogar úr eldri bekkjum fóru fyrir þeim yngri á leið þeirra milli stöðva í skólanum. „Þau eldri stóðu sig mjög vel eins og þau hafa gert á þessum degi hjá okkur,“ segir Ásta.

Fjölgreindarleikarnir hafa verið haldnir reglulega í skólanum, gjarnan á degi gegn einelti, en heimsfaraldur riðlaði þeim áætlunum á skólaárinu. Þess vegna var tækifærið gripið í gær þar sem færð í bænum var vond eftir snjókomu og umhleypingar síðustu vikna.

„Það var hvass, hált og gangbrautir ekki færar nema að hluta á sama tíma og snjómoksturstæki í fullri vinnu í bænum. Við tókum ákvörðunina á sunnudag og erum virkilega ánægð með hana því þetta var dásamlega skemmtilegur dagur,“ segir Ásta.

Á Fjölgreindardeginum fara nemendur á milli stöðva á tíu mínútna fresti. Meðal þess í boði var á stöðvunum var púsl, legó, hraðskák, slökun en líka útrásarstöð þar sem sérfræðingur frá Akureyri kenndi hvernig kötturinn er sleginn úr tunnunni, en því varð ekki viðkomið á Reyðarfirði í gær.

Haldið var í öskudagshefðina þannig að allir voru í búningum. Í lok hverrar stöðvar fengu krakkarnir sælgæti frá fyrirtækjum á Reyðarfirði. „Þau tóku mjög vel í okkar beiðni og studdu við okkur.“

Mynd: Grunnskóli Reyðarfjarðar


Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar