Opið lengur í ræktina með rafrænum aðgangi
Stefnt er að því að bjóða íbúum í Fjarðabyggð upp á rafrænt aðgengi í líkamsræktarstöðvar á Reyðarfirði, Eskifirði og Norðfirði frá og með haustinu. Með þessu verður aðstaðan aðgengileg utan hefðbundins opnunartíma.„Það er ekki byrjað þar sem við erum að bíða eftir búnaðinum,“ segir Magnús Árni Gunnarsson, verkefnastjóri íþróttamannvirkja Fjarðabyggðar. Vonast er til að búnaðurinn verði settur upp síðsumars þannig hægt verði að prufukeyra hann fram til áramóta.
„Þetta er sami búnaður og er til staðar en ekki voru til leshausar sem veita aðganginn,“ segir Magnús um búnaðinn.
Með þessu á nýting tækjasalanna að batna og íbúar njóta aukins sveigjanleika. „Það verður ekki opið allan sólarhringinn þótt þetta bæti opnunartímann klárlega,“ segir Magnús Árni. Endanlegt fyrirkomulag verður ákveðið síðar af íþrótta- og tómstundanefnd Fjarðabyggðar.