Opna netsýningu í tilefni þess að ár er liðið frá skriðuföllunum
Ströndin Studio hefur opnað ljósmyndasýningu á netinu tileinkaða fólkinu sem stóð í eldlínunni þegar stóra skriðan féll á Seyðisfjörð fyrir ári.Skriðan féll um tíu mínútur fyrir þrjú þann 18. desember í fyrra. Ár er því liðið frá atburðunum. Af því tilefni var sýningin opnuð í morgun.
Á www.thelandslideproject.com gefur að líta myndir og minningar frá um 30 einstaklingum sem ýmist urðu fyrir beinum áhrifum skriðufallanna eða stóðu í ströngu, svo sem í björgunaraðgerðum. Titill sýningarinnar er „Þegar rignir horfum við til fjalla.“ Hún er bæði á ensku og íslensku.
Slóvensku ljósmyndararnir Katja Goliat og Matjaž Rušt komu hingað til lands í sumar til að taka myndirnar til að fanga eftirköst hamfaranna á bæði landið og fólkið. Þau hafa sérhæft sig í heimildamyndatökunum á sviði nútímalistar. Þau voru áður á Seyðisfirði í desember 2018 og byrjuðu þá að taka myndir af íbúum Seyðisfjarðar.
Rannsóknir, samhæfing, skrif og útgáfa verkefnisins var í höndum Ströndin Studio, fræðslu- og ljósmyndamiðstöðvar út með Seyðisfirði. Ströndin Studio er samvinnuverkefni ljósmyndarans Jessicu Auer og sagnfræðingsins Zuhaitz Akizu, og þau sérhæfa sig í sögulegum og menningarlegum rannsóknum með hjálp analog myndatöku.