Opnunarsýning Sláturhússins á morgun eftir gagngerar endurbætur

Klukkan 14 á morgun opnar loks Menningarmiðstöðin Sláturhúsið á Egilsstöðum á nýjan leik með sýningunni Hnikun en húsið hefur undanfarin misseri fengið mikla andlitslyftingu.

Verkið Hnikun er eftir listakonurnar Ingunni Fjólu Ingþórsdóttur og Þórdísi Jóhannesdóttur en verkið er sérstaklega unnið út frá sögu sláturhússins gamla sem hýst hefur list af ýmsu tagi síðan og gerir áfram. Hnikun samanstendur af textaverkum, ljósmyndum, skúlptúrum og vídeóverkum og veitir gestum innsýn í það sem áður var enda er nafn sýningarinnar vísun í það hvernig eitt tekur við af öðru með tíð og tíma.

Þær stöllur Ingunn og Þórdís munu svo á sunnudaginn kemur klukkan 14 bjóða leiðsögn um sýningu sína og fara ofan í kjölinn með hvernig verk þeirra og hugmyndir spegla gamla tíma sláturhússins.

Þó safnið opni á ný eftir nokkrar tafir nú um helgina er formlega opnunarhátíð þó ekki fyrr en 22. september en þann dag verður formleg opnunardagskrá með tilheyrandi ræðuhöldum og uppákomum.

Sláturhúsið hefur tekið miklum breytingum til batnaðar undanfarna mánuði. Sýningarrými miklu bjartara en áður var og aðgengi allt miklu betra. Mynd Sláturhúsið.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar