Óskarsvaka á Skriðuklaustri

Í ár eru liðin 100 ár frá fæðingu kennarans og fræðimannsins Óskars Halldórssonar frá Kóreksstaðagerði í Hjaltastaðaþinghá. Af því tilefni efna Sigfúsarstofa, Gunnarsstofnun og afkomendur Óskars til blandaðrar dagskrár á Skriðuklaustri á laugardag.

Óskar var einn af forvígismönnum nýrrar útgáfu á ritsafni austfirska þjóðsagnaritarans Sigfúsar Sigfússonar upp úr 1980 og ber dagskráin keim af því.

Sagnakonurnar Arndís Þorvaldsdóttir og Berglind Ósk Agnarsdóttir munu segja sögur úr fórum Sigfúsar og Stefán Bogi Sveinsson mun kynna hina nýstofnuðu Sigfúsarstofu.

Skúli Björn Gunnarsson veitir gestum innsýn í ævi og störf Óskars og börn hans munu lesa úr bréfum fjölskyldunnar í Kóreksstaðagerði um lífið í Hjaltastaðaþinghá.

Þá mun Svanhildur Óskarsdóttir kynna nýja bók, Í bragartúni, sem geymir úrval greina Óskars um íslenskar bókmenntir.

Dagskráin hefst klukkan 14:30 og er hluti af Dögum myrkurs á Austurlandi. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir en einnig verður streymt frá viðburðinum á Youtube-rás Skriðuklausturs.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.