Páskaunginn Fiður á ferð um Múlaþing

Páskaunginn Fiður verður á ferð og flugi um þjónustu- og ferðamannastaði í Múlaþingi sem eru með opið um páskana til að stytta börnunum stundirnar. Fjölbreytt páskadagskrá er víða í sveitarfélaginu.

„Við vorum að leita að einhverju skemmtilegu fyrir börnin að gera á svæðinu og fannst þessi hugmynd um að Fiður, nýklakinn ungi, sé á ferð og flugi að skoða það sem er um er að vera um páskana,“ segir Heiða Ingimarsdóttir, verkefnastjóri upplýsinga- og kynningarmála hjá Múlaþingi.

Myndir af Fiðri verða á áberandi stöðum í almenningsrýmum til dæmis sundlauga og veitingastaða á svæðinu. Börn sem finna Fiður geta fengið mynd af unganum til að lita en þar er hann meðal annars í félagsskap Lagarfljótsormsins og Lunda. Fiður er teiknað af starfsmanni Múlaþings.

Ýmislegt er um að vera í Múlaþingi um páskana, meðal annars skipulögð dagskrá á skíðasvæðinu í Stafdal. Í dag og á morgun er dagskrá í Safnahúsinu á Egilsstöðum, páskaperl milli klukkan 16 og 18 í dag og páskaeggjaleit á Minjasafninu á sama tíma á morgun.

Nánari dagskrá um það sem er um að vera í Múlaþingi um páskana má finna á vef sveitarfélagsins.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar