Pólsk kvikmyndahátíð á Eskifirði
Fimm pólskar kvikmyndir verða sýndar á kvikmyndahátíð sem haldin er öðru sinni í Valhöll á Eskifirði um helgina. Kvenleikstjórar eru áberandi í dagskránni en líka myndir sem tengjast Íslandi.Dagskráin er fjölbreytt: heimildamyndir, stuttmyndir og svo leiknar myndir í fullri lengd fyrir bæði börn og fullorðna. Myndirnar eru sýndar með enskum texta og aðgangur er ókeypis. Olga Jablonska hefur haldið utan um dagskrána í samstarfi við Menningarstofu Fjarðabyggðar.
Opnunarmynd hátíðarinnar á laugardag heitir Infinity Storm og fjallar um fjallamann sem lendir í snjóbyl þar sem hann rekst á strandaglóp og þarf að koma báðum til byggða fyrir myrkur. Hin pólska Malgorzata Szumowska leikstýrir myndinni en Naomi Watts leikur aðalhlutverkið. Myndin er á ensku og sýnd með pólskum texta.
Þrjár myndir verða sýndar á sunnudag. Fyrst er það barnamyndin Detective Bruno en síðan heimildamyndin In Touch sem fjallar um Pólverja sem flytjast til Íslands en halda tengslunum heim í gegnum Skype. Loks er það stuttmyndin í Ijósaskiptunum. Maja Adams, sem nam kvikmyndagerð hérlendis, er leikstjóri hennar. Þar segir frá síðasta vitaverðinum sem er alinn upp á afskekktum vitastað en þarf að hætta störfum því tæknin tekur við af honum. Hann þarf að takast á við nýjan veruleika þegar þegar það eina sem hann kann í lífinu er tekið af honum. Valdimar Örn Flygenring leikur aðalhlutverkið.
Síðasta mynd hátíðarinnar verður sýnd sunnudaginn 11. desember. Er þar um að ræða gamanmyndina Zupa Nic sem gerist á árum kommúnistastjórnarinnar í Póllandi. Leikstjóri hennar er Kinga Debksa. Eftir hana eru síðan tónleikar með Stefni.