Pop-up og tombóla til styrktar flóttafólki frá Úkraínu í Húsi handanna

„Það er því miður ósköp lítið sem hægt er að gera fyrir fólkið sem er í þessum hræðilegu aðstæðum en við ætlum að reyna af okkar veika mætti,“ segir Lára Vilbergsdóttir hjá Húsi handanna á Egilsstöðum.

Á morgun, laugardag, fer þar fram bæði tombóla og pop-up sölumarkaður í anddyri Níunnar frá klukkan 12 til 15 og enn er pláss fyrir áhugasama framleiðendur að taka þátt en tilefnið er að safna fé til styrktar flóttafólki frá Úkraínu en þegar er nokkuð af flóttafólki komið hingað austur á land og von er á fleirum þegar fram líða stundir.

Lára segir að öll leiga á plássum og 20 prósent af allri sölu í Húsi handanna renni beint í sjóð sem afhentur verður Rauða krossinum á Austurlandi í kjölfarið meðan allar tekjur af tombólunni sjálfri fari í sjóð til styrktar flóttafólkinu.

„Það eru enn laus pláss enda eiga margir erfitt um vik vegna Covid en málefnið er þarft og brýnt og ég vona að flestir sjái sér fært að koma og leggja aðeins af mörkum.“

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar