Rangur texti með myndagátu Austurgluggans
Við prentum jólablaðs Austurgluggans, sem berst áskrifendum í dag og á morgun, var fyrir mistök rangur texti prentaður með myndagátunni.Sagt er að myndagátan innihaldi eina setningu. Hið rétta er að þær eru þrjár. Eins er rangur skiladagur á lausnum en hann ætti að vera mánudagurinn 6. janúar.
Eins féll úr árétting um að ekki er gerður greinarmunur á grönnum og breiðum sérhljóða né hástöfum og lágstöfum í gátunni.
Beðist er velvirðingar á þessum mistökum.