Rekstur kajakleigu á Djúpavogi gengur glimrandi vel

„Við höfum þurft að fresta eða hætta við töluverðan fjölda ferða sökum veðurs en heilt yfir hefur þetta sumar gengið glimrandi vel,“ segir Maciej Pietrunko, stofnandi ferðaþjónustufyrirtækisins Arctic Fun á Djúpavogi.

Það fyrirtæki hefur tvö síðustu sumrin boðið áhugasömum upp á skipulagðar kajakferðir í nokkrum fegurstu fjörðum Austurlands eins og Berufjörð og Hamarsfjörð en auk þess leigir fyrirtækið út fjallahjól fyrir þá sem vilja meiri átök í fallegu umhverfi Djúpavogs.

Maciej segir ferðirnar mun vinsælli meðal erlendra ferðamann en íslenskra hingað til en viðurkennir líka að hafa ekki markaðssett ferðirnar ýkja mikið meðal heimamanna hingað til.

„Mikill meirihluti gesta okkar eru erlendir ferðamenn en fleiri og fleiri Íslendingar eru að veita þessu athygli. Við erum með svokallaða sit-on top kajaka sem eru öruggari en hinir þar sem þú ert ekki fastur í bátnum ef eitthvað kemur fyrir. Ferðunum okkar hefur verið vel tekið og sérstaklega er túrinn um Berufjörð vinsæll enda fagur fjörður og ekki síst frá sjó.“

Eðli máls samkvæmt þarf veður og sjólag að vera tiltölulega gott til að auðvelt sé að eiga við kajaka á sjó en Maciej segir að árstíðin skipti ekki öllu máli í því samhengi ef veður hangir stillt og gott. Fyrirtækið verði því opið áfram út veturinn en ávallt sé sá fyrirvara á ferðunum að þær geti fallið niður fyrirvaralítið.

„,Gestir okkar sýna því undantekningarlaust skilning enda eru þeir margir óvanir og skilja hættuna á að vera úti á sjó þegar veður versnar. Öryggið verður alltaf að vera í fyrsta sæti í slíkum ferðum.“

Sumir segja að útsýn yfir fagra fjallgarða Austfjarða sé töluvert betri af sjó en landi og fátt einfaldara en leigja sér kajak til að komast að raun um það. Mynd Maciej Pietrunko

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.