Safna fyrir aðstoð við Úkraínu á Kærleiksdögum
Fræðsla um umhverfismál og sjálfbærni er gert hátt undir höfði á Kærleiksdögum Verkmenntaskóla Austurlands í dag og á morgun. Safnað verður fyrir mannúðaraðstoð í Úkraínu á nytjamarkaði seinni partinn í dag.Opnir dagar í skólanum fengu nafnið Kærleiksdagar árið 2019. Þar með var líka komið á þeirri hefð að safna fyrir góðu málefni. Dagarnir voru haldnir með eðlilegum hætti í mars 2020 en í mýflugumynd í fyrra vegna faraldursins.
Þeir eru nú aftur komnir á beinu brautina og hófust með fræðsluerindum um sjálfbærni og umhverfismál í morgun. Meðal erinda sem í boði verða í dag eru um nýtingu í sjávarútvegi, vistvænan akstur, lesin verður þjóðsaga sem tengist sjálfbærni auk þess sem nemendur verða sjálfir með jafningafræðslu.
Milli klukkan 16 og 19 verður haldinn nytjamarkaður í skólanum þar sem verslað verður með muni eins og bækur, spil og föt. Markaðurinn er öllum opinn og tekið á móti vörum til sölu á staðnum. Ágóði af markaðinum rennur síðan til mannúðarstarfs vegna stríðsins í Úkraínu, með milligöngu Rauða krossins.
Á sama tíma í verknámshúsi skólans verður í boði viðgerðarþjónusta á smáhlutum á vegum kennara og nemenda skólans. Þá hafa bæði nemendur og starfsfólk skólans síðustu daga deilt myndum á Facebook sem tengjast kærleik. Er það hluti af áheitasöfnun þar sem ágóðinn rennur einnig til mannúðarstarfsins.
Á morgun verður farið í óvissuferð. Frí er í skólanum á föstudag þar sem nemendur eru lengur við í dag, en það kvöld verður haldin árshátíð.
Frá Kærleiksdögum 2020.