Samtal um íslensku ullina

Hallormsstaðaskóli stendur á morgun fyrir opinni málstofu um nýtingarmöguleika íslensku ullarinnar þar sem rætt verður um ullina frá ýmsum sjónarhornum.

„Við erum að skapa vettvang til samtals um íslensku ullina og þá auðlind sem býr í henni,“ segir Bryndís Ford, skólastjóri.

„Við fáum fulltrúa frá Ístex til að halda erindi og líka frá tveimur öflugum spunaverksmiðjum, Uppspuna sem hefur leitt þá þróun í nokkur ár og Gilhaga sem er yngri. Frá þessu fólki heyrum við hvernig það sér fyrri sér verðmæti og nýtingarmöguleika ullarinnar.

Við fáum líka listakonuna Guðrúnu Höddu sem í mörg ár hefur unnið með íslensku ullina í list sinni í sköpun og fléttum hennar nálgun inn í umræðuna.

Síðan sýna tveir nemendur verkefni sín. Jens Einarsson notaði afgangsull til að búa til fleka til að gleypa sig hljóð í hljóðveri. Íslenska ullin er mun umhverfisvænni en mörg önnur efni sem notuð eru til þess í dag.

Síðan er það Emma Charlotta Ärmänen með Charma-ull. Hún skoðaði í sínu lokaverkefni hvernig hægt er að nýta ullina betur og býr litla handverkshluti úr henni,“ segir Bryndís.

Málþingið sjálft stendur frá 13-16. Aðgangur er frí og öllum frjáls. Eftir það verður opið hús þar sem fólkið af málþinginu verður með vörur sínar til sýnis og sölu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.