Sauðfé og ferðafólk stundum slæm blanda
Stuðlagil breyttist skyndilega í einn vinsælasta ferðamannastað Austurlands árið 2017 og umferð jókst skyndilega um svæðið. Nágrannarnir hafa síðan lagað sig að breyttum aðstæðum.„Fólk hér fer að veita því athygli að það eru mun fleiri bílar að þvælast hér um en venjan hafði verið. Sérstaklega þótti undarlegt að fólk var að leggja bílum sínum hér neðan við brúna og hverfa svo sjónum á göngu eitthvað.
Þá voru þetta ekki nema þrír til fjórir bílar á dag en okkur fannst þetta mikil og skyndileg aukning. Svo líður fram á sumarið og þá eru þetta orðnir tíu bílar á dag. Ári síðar komu hér 30 bílar á dag á sama tíma. Svo hættum við bara að telja,“ segja þau Sigvaldi Ragnarsson og Halla Eiríksdóttir, bændur á Hákonarstöðum á Jökuldal, sem búa í nágrenni gilsins að norðanverðu í viðtali í nýjasta tölublaði Austurgluggans.
Þau búa þar með sauðfé og á stundum hafa ferðafólkið og kindurnar rekist á. „Á sumrin þegar verið er að heyja er erfitt að komast um og stundum alls ekki. Á haustin þegar við erum að smala geta skapast vandræði svona ef litið er á þetta út á forsendum búskapar.
Það getur þurft að stoppa umferð um tíma og þó flestir ferðamennirnir sýni þessu skilning þá er alltaf einn og einn sem býsnast yfir kindum á veginum. Reyndar eru þeir fleiri sem finnst þetta æðislegt og jafnvel mynda í gríð og erg enda væntanlega óalgengt að sjá kindum hleypt út að vori eins og gert er hérlendis.“
Eins og þau lýsa jókst straumurinn inn að Stuðlagili skyndilega, án þess að þar væru innviðir eins og bílastæði eða salerni.
„Planið hér við húsið okkar nánast snúningsplan fyrir ferðamennina. Ef hér eru tveir eða fleiri bílar á planinu okkar þá gefur ferðafólkið sér að þetta sé almennt bílastæði. Við meira að segja biðjum vini okkar að leggja ekki við húsið, vegna þessa.“
Sigvaldi rifjar líka upp að eitt sinn hafi verið bankað á á heimilinu og þar stóð þá kona með barn fyrir utan. Ekki kunni hún ensku en gat komið Sigvalda í skilning um að barninu væri illt í maganum og þyrfti á klósett. Sigvaldi sýndi aumur á barninu og benti þeim á að koma inn.
Skipti þá engum togum að konan veifar eitthvað út á planið og út úr smárútu streymdi fólk sem vildi einnig komast á klósett. Þegar átta einstaklingar voru komnir í röð á klósettið sagði Sigvaldi hingað og ekki lengra og henti fólkinu út.
Lengri útgáfa viðtalsins birtist í Austurglugganum sem kom út í vikunni. Hægt er að panta áskrift hér.