Síðustu forvöð að vitna „Afkomendur Borgarfjarðar“

„Hugmyndin að verkefninu kviknaði á janúarkvöldi árið 2021 en mig hefur lengi langað að gera ljósmyndaverkefni tengt Borgarfirði og fólkinu þar,“ segir Elsa Katrín Ólafsdóttir, ljósmyndari.

Merkileg ljósmyndasýning hennar hefur verið opin gestum á þriðju hæð Hafnarhússins á Borgarfirði eystra um hríð og verður út þennan mánuð en þar er um að ræða stórt og mikið verkefni sem Elsa kallar Afkomendur Borgarfjarðar.

Sumarið 2021 fékk Elsa til sín í myndatöku alla þá sem töldu sig vera Borgfirðing, voru þar búsettir eða áttu þangað sterkar tengingar. Þáttakan fór fram úr vonum og mættu alls 193 Borgfirðingar til myndatöku. Þeim myndum raðaði Elsa svo upp í Hafnarhúsinu með upplýsingum um heimilisfang í firðinum eða tenginguna til Borgarfjarðar.

Kveikjan að þessari hugmynd Elsu segir hún hafa verið frægar portrett-teikningar Kjarvals af sveitungum sínum á þriðja áratug síðustu aldar en þá myndaseríu kallaði meistarinnar alltaf „hausana sína.“ Sú myndasería mikilvægur menningararfur fyrir alla Íslendinga en sérstaklega Borgfirðinga.

Þetta höfðaði sterkt til Elsu og ljósmyndasería hennar kallast á við verk Kjarvals og er ætlað að vera kveðja frá Borgfirðingum nútímans til genginna kynslóða heimamanna.

Erlendur ferðalangur virðir fyrir sér íbúa Borgarfjarðar á merkilegri sýningu Elsu í Hafnarhúsinu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.