Silfurberg: Mikilvægasta framlag Íslands til umheimsins?
Erindi eftir Leó Kristjánsson um silfurberg á Austurlandi, notkun þess og mikilvægi á heimsvísu verður flutt í Breiðdalssetri á Breiðdalsvík föstudaginn 29. apríl kl. 12:15.
Leó Kristjánsson er jarðeðlisfræðingur við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands. Á síðastliðnum sextán árum hefur hann meðal annars unnið að öflun gagna um notkun silfurbergskristalla í vísindum, einkum á tímabilinu 1780-1930.Rannsóknir á þessum kristöllum, sem fram til 1900, eða lengur, komu í flestum tilvikum frá Helgustöðum í Reyðarfirði, höfðu mikil áhrif á þróun ljósfræði og juku skilning á eðli efnisheimsins. Enn meiri urðu áhrif svonefndra Nicol-prisma úr silfurberginu, sem notuð voru í sérhæfð ljóstæki til fjölbreytilegra rannsókna á mörgum sviðum raunvísinda. Óhætt er að segja, að íslenska silfurbergið hafi flýtt ýmsum mikilvægum tækniframförum mannkyns um áratugi.
Erindið er í senn sagnfræðilegt og jarðfræðilegt og er opið öllum. Boðið verður upp á súpu.