Sjómannadagshátíðarhöld á Djúpavogi

Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur á Djúpavogi um síðustu helgi að vanda.  Mál manna var að þetta væru fjölmennustu sjómanndagshátíðarhöld þar í mörg herrans ár. djupiv_sjomannad.jpgBlíðskaparveður var á sjómannadaginn á Djúpavogi og fóru hátíðarhöldin vel fram og voru óvenju fjölmenn. Forskot var tekið á sæluna á laugardagskvöldið í Löngubúð þar sem fjöldi manns kom saman til að hlusta á sjómenn frá Djúpavogi segja sögur af sjónum.  Þetta var prýðisgott kvöld og sögurnar frábærar, enda margir frábærir sögumenn í hópi Djúpvogskra sjómanna.

,,Sjómannadagskráin var með hefðbundnu sniði, skemmtisigling og kaffi í Sambúð, hvorutveggja vel sótt og höfðu sumir orð á því að þetta hafi verið mesti fjöldi samankominn á Sjómannadegi á Djúpavogi í mörg herrans ár. Það voru einir 8 bátar sem buðu fólki í siglingu og gaman að sjá alla nýju bátana taka þátt" segir Bryndís Reynisdóttir á Djúpavogi.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar