Skinney SF 20 komin heim

Nýtt skip Skinneyjar Þinganess, Skinney SF 20, kom til heimahafnar á Höfn í Hornafirði um hádegisbil. Þegar skipið hefur verið tollafgreitt er öllum boðið að koma um borð að skoða skipið og þyggja léttar veitingar. Reiknað er með að tollskoðun ljúki fljótlega.

skinney.jpg

Skinney SF 20 er nýsmíði. Tvo mánuði hefur tekið að sigla því frá Asíu til heimahafnar. Það lagði af stað frá Kaohsiung í Taiwan 10. febrúar síðastliðinn og þurfti á leið sinni til dæmis að sigla um háskalegar sjóræningjaslóðir undan strönd Sómalíu í fylgd herskips.  Skipið er ætlað til tog- og netaveiða og er hátt í þrjátíu metra langt.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar