Skráning hafin í Músiktilraunir 2012
Skráning hljómsveita í Músiktilraunir 2012 hófst í dag. Magar austfirskar hljómsveitir hafa spreytt sig í keppninni í gegnum tíðina.
Oft er talað um að Músíktilraunir hafi verið stökkpallur fyrir ungar og óreyndar hljómsveitir út í hinn „harða tónlistarbransa“. Hljómsveitir á borð við Kolrössu Krókríðandi,Botnleðju,Maus,Mínus, Jakobínarínu, Agent Fresco og nú Of Monsters And Men eru ágætis vitnisburður um að ýmis ævintýri taka við að loknum tilraununum.
Þá er ónefnd austfirska hljómsveitin Dúkkulísurnar sem vann keppnina árið 1983. Austfirsk sveit hefur ekki unnið keppnina síðan.
Margar af þessum ofangreindu hljómsveitum stukku í djúpu laugina að loknum Músíktilraunum. Þær tóku upp sínar fyrstu breiðskífur, fóru í hljómleikaferðalög til fjarlægra landa, spiluðu með heimsfrægum hljómsveitum og upplifðu „rokkdrauminn“ á ýmsa vegu.
Það er ekki síst reynslan og samveran við aðra tónlistarmenn sem er svo verðmæt og mikilvægur þáttur fyrir þá sem taka þátt. Nýjar hugmyndir og hljómsveitir spretta upp og blómstra í íslensku tónlistarflórunni. Það er einmitt einn helsti tilgangur Músíktilraunanna.
Þetta er því einstakt tækifæri fyrir alla sem eru að grúska í tónlist til þess að koma fram á flottum stað með góðum græjum, fá verðmæta reynslu og kynnast öðrum íslenskum tónlistarmönnum.
Verðlaunin verða stórglæsileg, eins og undanfarin ár, en verðlaunað er fyrir fyrstu þrjú sætin, ásamt hljómsveit fólksins, gítarleikar, bassaleikara, hljómborðsleikara, söngvara/rappara, trommara, textagerð og ný verðlaun rafheili Músíktilrauna.
Opið er fyrir umsóknir frá 20. febrúar - 5. mars
Skila þarf inn 2 lögum með umsókn
Nánari upplýsingar
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
www.facebook.com/musiktilraunir1
www.musiktilraunir.is