Söfnun birkifræs að fara af stað
Átakt til söfnunar á birkifræi hérlendis er að hefjast öðru sinni. Fræmagn á trjám á Norður- og Austurlandi er með ágætasta móti.Það eru Landgræðslan og Skógræktin sem standa fyrir átakinu í samstafi við félagasamtök á borð við Kvenfélagasamband Íslands, Lions og Skógræktarfélag Íslands auk nokkurra fyrirtækja.
Átakið er liður í því að útbreiða á ný birkiskóglendi sem þakti a.m.k. fjórðung landsins við landnám. Á rýru landi er gjarnan kolefnislosun því þar er gamall jarðvegur enn að rotna. Ef landið klæðist birkiskógi stöðvast þessi losun og binding hefst í staðinn. Svona verkefni eru því líka loftslagsverkefni.
Birkið er frumherjategund sem sáir sér mikið út á eigin spýtur ef hún fær til þess frið. Birkið heldur því starfinu áfram ef vel tekst til að koma því af stað á nýjum svæðum.
Safna má birkifræi frá lokum ágúst og fram í byrjun október eða svo lengi sem reklar eru á birkitrjám. Yfirleitt hefur verið mælt með frætínslu í september og október, en í hlýjum árum mætti byrja tínslu fyrr það er frá frá lokum ágúst.
Í fyrra safnaðist mest á Suður- og Vesturlandi en þar var með eindæmum gott fræár en frekar lélegt á Norður- og Austurlandi. Núna hefur þetta snúist. Á Norðurlandi og víða á Austurland er fræmagn á trjám með ágætum en mun lakara fyrir sunnan og vestan. Ekki er óalgengt að fræþroski sé mismikill á milli ára. Í fyrra var tekið á móti 274 kg af birkifræi. Mjög margir dreifðu sjálfir fræinu sem þeir söfnuðu í fyrra.
Í haust verða fræbox að finna í verslunum Bónus um land allt. Einnig getur fólk fengið box á starfsstöðvum Landgræðslunnar og Skógræktarinnar. Hægt er að skila fræjum í fræsöfnunartunnur sem eru í Bónus og víðar en erslunin Kauptún á Vopnafirði tekur líka á móti fræi. Þá er tekið á móti fræi í starfsstöðvum Landgræðslunnar og Skógræktarinnar en nánari upplýsingar um verkefnið og móttökustaði eru á www.birkiskogur.is.
Í fyrra skiluðu margir fræi í bréfpokum og eða pokum úr taui. Í pokana þarf setja miða með upplýsingum um söfnunarstað og dagsetningu – og muna að loka pokunum vel. Ekki nota plastpoka því nýtínd og rök fræ skemmst mjög fljótt í þéttum umbúðum.