„Stækkar tónlistina okkar“

Hljómsveitin Coney Island Babies og Sinfóníuhljómsveit Austurlands koma fram á sameiginlegum tónleikum í Egilsbúð í Neskaupstað á laugardagskvöld og spila lög af plötum Coney Island Babies.

„Langa svarið við spurningunni hvernig þetta hafi komið til er að við höfum gaman af popp- og rokktónlist þar sem ekki eru notuð þessu hefðbundnu rokkhljóðfæri.

Fyrir tveimur árum gáfum við út plötu þar sem upptökustjórinn okkar útsetti strengi fyrir nokkur lög. Upp úr því sprettur hugmyndin.

Í útgáfuhófi þeirra plötu kemur Gillian Haworth, úr Sinfóníuhljómsveitinni, með þessa hugmynd að það væri gaman að flytja tónlistina okkar með strengjasveit. Þann bolta gripum við á lofti,“ segir Jón Knútur Ásmundsson, trommuleikari Coney Island Babies.

Hljómsveitin hefur gefið út tvær breiðskífur, annars vegar Morning to Kill árið 2012 og síðan Curbstone árið 2020. Á efnisskránni um helgina verða lög af báðum plötunum. Hluta þeirra flytur Coney Island Babies eitt en eftir hlé bætast sex félagar úr sinfóníusveitinni á sviðið. Þessir tveir hópar æfðu í fyrsta sinn saman í gærkvöldi.

„Við höfum æft sjálfir stíft í allt haust en síðan hittum við sinfóníuhljómsveitina í gærkvöldi. Þetta er mikið fagfólk sem les tónlistina okkar eins og Doddabók.

Það er mjög lærdómsríkt fyrir okkur að fá að vera með svona spilurum. Þetta eru tveir ólíkir heimar en við finnum að tónlistin okkar stækkar og hljómar mun meira grand þegar þessi hljómheimur bætist við. Hann gefur henni aðra áferð.“

Ýmis fordæmi eru fyrir því bæði erlendis og hérlendis að poppsveitir og strengjasveitir vinni saman en eftir því sem næst verður komist hefur slíkt ekki áður gerst á Austurlandi.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar