Stór stund í austfirsku tónlistarlífi á sunnudaginn

„Ég er jafn spennt og allir aðrir því ég hef ekki einu sinni heyrt verkið ennþá í neinni mynd með hljómsveitinni,“ segir Þórunn Gréta Sigurðardóttir, tónskáld úr Fellabæ.

Á sunnudaginn kemur rennur upp stór stund bæði á hennar ferli og í tónlistarsögu Austurlands þegar Sinfóníuhljómsveit Austurlands stígur á stokk í Tónlistarmiðstöðinni á Eskifirði og frumflytur verkið Rót sem Þórunn hefur samið sérstaklega fyrir hljómsveitina. Það er í fyrsta skipti sem hljómsveitin frumflytur verk á Austurlandi eftir austfirskt tónskáld.

Þórunn sjálf hefur ekki heyrt svo mikið sem nótu af verkinu hingað til en hún býr fyrir sunnan og hefur ekki gefist tóm til koma austur eða fara yfir verkið með sveitinni.

„Ég er reyndar dálítið hrædd um við veðrið miðað við spána þessa stundina. Ótrúlegt eftir allt þetta Covid-vesen og hafa þurft að fresta hinu og þessu um langan tíma að við bætist kannski aukin leiðindi vegna veðursins. En ég vona það besta, geri ráð fyrir að koma austur á laugardag og renna þá beint í Tónlistarmiðstöðina til að heyra verkið og hitta hljómsveitarmeðlimi.“

Verkið vísar til rótanna austanlands

Verkið sem sveitin flytur segir Þórunn hafa tvenns konar merkingu í sínum huga. „Í fyrsta lagi vísar þetta til Austurlands og minna róta á þeim stað á landinu en svo er þetta ennfremur vísun í orðið umrót eða hversu tilviljanakennt lífið er og óútreiknanlegt.“

Tónleikarnir fara sem fyrr segir fram í Tónlistarmiðstöðinni á Eskifirði á sunnudaginn og hefjast klukkan 16. Á efnisskránni er jafnframt einleikur sellókonsertleikarans Ólafar Sigursveinsdóttur og þá mun hljómsveitin flytja hina „ófullgerðu“ sinfóníu eftir Franz Schubert.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar