Stóra stundin að renna upp í Sláturhúsinu

„Það er vissulega spenna í gangi, gleði og gaman enda styttist í stóru stundina,“ segir Ragnhildur Ásvaldsdóttir, forstöðumaður menningarmiðstöðvarinnar Sláturhúsið á Egilsstöðum.

Eftir að hafa frestað formlegri opnun hússins um tvo mánuði sökum tafa við framkvæmdir innandyra styttist í formlega opnun að nýju en fyrsta sýningin í stórendurbættu húsnæði verður haldin þann 3. september.

„Það mun allt standast með þá dagsetningu en svo hefur verið ákveðið að formleg opnun á öllu húsinu með miklum ræðuhöldum og flottheitum verður þann 22. september.“

Fyrir Byggðaráði Múlaþings liggur nú fundargerð bygginganefndar menningarhússins en þar er verið að velta vöngum yfir hvað gera skuli við braggann sem stendur innan við Sláturhúsið. Hefur Byggðaráð falið sveitarstjóra að vinna mat á þeim valkostum sem til greina koma.

Sjálf vill Ragnhildur annaðhvort að bragginn verði gerður upp í heilu lagi ellegar fjarlægja aðeins fremri hluta hans en með þeim hætti verður til flott yfirbyggt tónlistarsvið sem myndi sóma sér vel sem viðbót við menningarhúsið sjálft.

„Það væri mjög gaman að fá svona útisvið ef aðeins fremri hluti braggans yrði fjarlægður, halda efri hlutanum og það yrði svona skemmtilegt útisvæði. Það gæti verið ofsalega fín lausn að mínu mati. Þá yrði hluti braggans yfir sviðinu en þar sem fremri hlutinn er nú væri undir beru lofti.“

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar