SÚN gefur bókina um snjóflóðin í Neskaupstað
Samvinnufélag útgerðarmanna í Neskaupstað (SÚN) gefur um þessar mundir bók af Útkallsbók Óttars Sveinssonar sem fjallar um snjóflóðin í Neskaupstað í desember árið 1974. Minningarstundir verða haldnar á föstudag bæði eystra og í Reykjavík til að minnast atburðanna fyrir 50 árum.„Stjórn SÚN var að velta fyrir sér hvað félagið gæti gert til að minnast þessara atburða í ár og þá opnaðist tækifæri til að kaupa bækur, sem til voru á lager, fyrir sanngjarnt verð,“ segir Guðmundur R. Gíslason, framkvæmdastjóri SÚN.
Á meðan birgðir endast fá allir viðskiptavinir SÚN-búðarinnar í Neskaupstað sem vilja frítt eintak af bókinni. Hún verður einnig gefin á samverustund sem Norðfirðingafélagið hefur boðað til í Reykjavík á föstudag.
Óttar Sveinsson, sem í rúm 30 ár hefur gefið út bækur um björgunarstörf á Íslandi, sendi árið 2012 frá sér bókina „Útkall – sonur þinn er á lífi“ sem fjallar um snjóflóðin í Neskaupstað og afleiðingar þeirra. Bókinni var vel takið enda voru í henni í fyrsta sinn skrásettar frásagnir sumra þeirra sem lentu í eða komu að snjóflóðunum sem féllu 20. desember árið 1974 og kostuðu tólf mannslíf.
Guðmundur segir viðtökurnar við gjöf SÚN hafa verið góðar, þótt bókin sé þegar til á mörgum heimilum í Neskaupstað. „Það hafa bæði vaxið upp nýjar kynslóðir sem ekki eiga bókina en líka hefur margt fólk flutt til Neskaupstaðar síðan bókin kom út sem ekki á hana.“
Minningarstundir verða á föstudag bæði í Neskaupstað og í Reykjavík þar sem þá eru 50 ár liðin frá snjóflóðunum. Eystra verður minningarstundin í Norðfjarðarkirkju klukkan 17:00 en syðra í Fella- og Hólakirkju klukkan 20:00.
Þótt í ár séu sérstök tímamót segir Guðmundur að minningin um snjóflóðin og þau sem fórust liti alltaf aðventuna hjá Norðfirðingum. „Fólk talar um og rifjar upp þessa atburði á hverju ári í aðdraganda jóla.“
Helga B. Hjálmarsdóttir, starfsmaður SÚN-búðarinnar, afhendir Þorgerði Malmquist eintak af Útkallsbókinni. Mynd: Aðsend