Þjófstarta Frönskum dögum á Fáskrúðsfirði

Ein allra þekktasta bæjarhátíð Austurlands, Franskir dagar á Fáskrúðsfirði, hefst í kvöld með sérstöku þjófstarti en næstu dagana er þétt og metnaðarfull dagskrá í bænum.

Þjófstartið sem hér um ræðir er pöbbkviss í Skrúð í kvöld en hin formlega dagskrá þessarar hátíðar til minningar um þá frönsku sjómenn sem stunduðu útgerð frá Fáskrúðsfirði, hefst klukkan 16 á morgun með hjólreiðakeppninni Tour de Fáskrúðsfjörður. Þegar líður að kvöld verður setningarathöfnin og hin vinsæla Kenderísganga og lofa skipuleggjendur sérstökum leynigesti þegar líða fer á kvöldið.

Fjölmargir viðburðir taka svo við fram á sunnudag. Brekkutónleikarnir á föstudagskvöldinu og á hátíðinni koma meðal annarra fram tónlistarfólkið Ragnheiður Gröndal og Páll Óskar. Helgistund og minningarathöfn að venju upp úr hádegi á laugardeginum og síðar þann dag fjölbreytt fjölskylduhátíð á Skólavegi.

Dagskrána í heild sinni má sjá hér.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.