Tímamót í menningu Djúpavogs og landsins alls - Myndir

Samtímalistasafnið Ars Longa opnaði á Djúpavogi síðasta laugardag með tveimur sýningum. Því er ætlað að vera miðstöð fyrir alþjóðlega samtímalist.

„Allar hagrannsóknir sýna að þar sem menntun og menning blómstra þá er líka flott atvinnulífið. Þess vegna þurfum við meira svona um allt land til að tryggja byggð í landinu öllu,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra við opnun safnsins.

Djúpavogsbúarnir og listamennirnir Sigurður Guðmundsson og Þór Vigfússon hafa verið aðalhvatamennirnir að baki safninu og þróað með sér hugmyndina undanfarin fimm ár. Stefnt er að því að Ars Longa verði miðstöð sem á fjölbreyttan máta sýni og miðli list myndlistarfólks úr grasrót listaheimsins.

Fyrr á þessu ári fékk Ars Longa svokallað Vogshús, gamalt fiskvinnsluhús við utanverðan Voginn á Djúpavogi, að gjöf frá sveitarfélaginu Múlaþingi. Á laugardag opnaði það formlega með tveimur sýningum, annars vegar Rúllandi snjóbolta 15, hins vegar Tímamót.

Snjóboltinn er haldinn á vegum kínversk-evrópsku myndlistarmiðstöðvarinnar CEAC en slíkar sýningar hafa verið haldnar árlega, utan í fyrra, á Djúpavogi frá 2014. Á sýningunni í ár eru verk 22ja listamanna, 11 íslenskra og 11 frá Evrópu og Kína.

Á Tímamótum eru verk listamanna á borð við Guðnýju Rósu Ingimarsdóttur, Margrétar H. Blöndal, Kristbergur Pétursson auk Sigurðar og Kristjáns bróður hans en þau hafa öll gefið verk til Ars Longa og mynda grunninn að safnkosti þess.

Trú á safninu

„Dagurinn í dag markar tímamót í menningu Djúpavogs og landsins alls,“ sagði Kristín Dagmar Jóhannesdóttir, stjórnarmaður í Ars Longa. Hún sagði að til stæði að vera með sýningar á sumrin í húsnæði Ars Longa en vinna í húsinu á veturna. Á næstu misserum verði miklar breytingar á því.

Björn Ingimarsson, sveitarstjóri Múlaþings kvaðst hlakka til að fylgjast með þróuninni. „Það eru metnaðarfullir aðilar sem standa að þessu.“

Hlynur Helgason, listfræðingur og varaformaður Sambands íslenskra myndlistarmanna talaði á svipuðum nótum og Lilja. „Til að Ísland sé íbúðarhæft verður að stuðla að fjölbreyttri menningu, sérstaklega myndlist, ekki bara í Reykjavík heldur um allt land.“

Hann hrósaði líka Sigurði og Þór fyrir þeirra drifkraft og elju við að koma safninu á laggirnar. „Þór og Sigurður hafa staðið bakvið samfélagslega vitund íslensks myndlistarlífs alla sína tíð. Að hér sé komin föst safneign er gríðarlega mikilvægt.“

Undir það tók Lilja. „Þið Sigurður og Þór eru sannarlega að efla allt hér. Það er orðið svo að fólk kemur og skoðar þennan kaupstað vegna þeirrar menningar sem hér er. Það er skemmtilegt að sjá hvað er að gerast hér eystra. Hér er komið safn sem við getum stutt við og látið vaxa og dafna til framtíðar.“

Ars Longa Opnun 0001 Web
Ars Longa Opnun 0007 Web
Ars Longa Opnun 0010 Web
Ars Longa Opnun 0015 Web
Ars Longa Opnun 0020 Web
Ars Longa Opnun 0021 Web
Ars Longa Opnun 0026 Web
Ars Longa Opnun 0027 Web
Ars Longa Opnun 0055 Web
Ars Longa Opnun 0067 Web
Ars Longa Opnun 0069 Web
Ars Longa Opnun 0072 Web
Ars Longa Opnun 0077 Web
Ars Longa Opnun 0080 Web

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar