Tækniminjasafn fagnar afmæli
Tækniminjasafn Austurlands á Seyðisfirði á 25 ára afmæli á þessu ári. Til þess að fagna þessum áfanga verður haldið afmælisboð á safninu á morgun, laugardag, milli kl. 16 og 17. Sýningin ,,Safn á leiðinni" verður opnuð og gestir fá tækifæri til þess að skoða hana með leiðsögn starfsmanna.
Sr. Cecil Haraldsson, stjórnarformaður Tækniminjasafnsins, ávarpar gesti og Jóhann Grétar Einarsson, símritari, fyrrverandi símstöðvarstjóri og safnvörður segir nokkur vel valin orð. Léttar veitingar í boði. Boðið hefst á Símstöðinni, Hafnargötu 44 Seyðisfirði, kl. 16 stundvíslega.