Tveir Lottóvinningar seldir eystra
Tveir vinningar í Lottói helgarinnar voru seldir á austfirskum sölustöðum.Annars vegar var um að ræða annan vinning í aðalleik Lottós, fjórar aðaltölur réttar auk bónustölu. Sá miði var seldur í Brekkunni á Stöðvarfirði. Á þann miða komu 199.570 krónur. Sex aðrir voru með þennan vinning.
Þá var annar vinningur í Jókerleiknum, fjórar tölur í réttri röð, seldur í Olís í Neskaupstað. Í hlut þess vinningshafa komu 100.000 krónur. Fimm aðrir deildu vinningnum.
Einn fékk aðalvinninginn, 52,9 milljónir króna. Sá miði var seldur í áskrift.