Undirbúningur í fullum gangi fyrir sumarið hjá Ferðafélagi Fljótsdalshéraðs
„Við ætlum að opna skálana um miðjan júní og það hefur verið mikið um bókanir inn í sumarið,“ segir Þórhallur Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Ferðafélags Fljótsdalshéraðs (FFF), en undirbúningur fyrir vertíðina í sumar er nú komin á fullt.
Gönguferðir og útivist nýtur sívaxandi vinsælda meðal bæði landsmanna og erlendra ferðamanna og ferðir um Austurland hátt skrifaðar. Fáir sem gera sér kannski grein fyrir að Ferðafélag Fljótsdalshéraðs er þriðja stærsta ferðafélag á landinu öllu.
Reglulegt viðhald og umhirða er stór þáttur í að halda kostnaði niðri en fasteignum og búnaði í standi og þó ferðafélagsmenn hafi sinnt því í allan vetur fór undirbúningur á fullt fyrr í þessum mánuði. Þá fékk FFF björgunsveitina Hérað sér til aðstoðar við að koma fyrir einum sex göngubrúm á Stórurðarsvæðið og jafnframt að koma fyrir tröppum yfir girðingar á því svæði.
Fyrstu ferðirnar á vegum FFF verða strax 1. maí þegar gengið verður umhverfis Urriðavatnið og í kjölfar þess koma þær hver á fætur annarri. Fyrir utan töluvert af styttri sunnudagsgöngum verður boðið upp á einar 7 mismunandi dagsferðir yfir sumarið og fjórar lengri ferðir.
Mynd: Björgunarsveitarmenn að aðstoða við uppsetningu einna sex brúa fyrr í mánuðinum. Mynd Þórhallur Þorsteinsson