Upphafskvóti 40 þúsund tonn
Sjávarútvegsráðherra hefur gefið út reglugerð um veiðar á íslenskri sumargotssíld og er upphafskvótinn 40.000 tonn, sem þýðir að 25.000 tonnum verður úthlutað til skipa í dag en eru þau til viðbótar þeim 15.000 tonnum sem voru gefin út 16. október 2009.Í nótt var 900 tonnum af síld landað úr Ásgrími Halldórssyni hjá Skinney-Þinganesi á Hornafirði. Síldin er ágætlega væn og eru fleiri skip nú á síldveiðum.
Ennfremur hefur ráðherra ákveðið að reglugerð um nýtingu afla og aukaafurða verði breytt á þann hátt að skylt sé að færa allan afskurð sem fellur til við vinnslu síldarinnar um borð í fullvinnsluskipum í land.
Einnig verður gerð breyting á reglugerð um veiðar á íslenskri sumargotssíld þar sem heimild til að sleppa niður lifandi síld í nót er afturkölluð.