„Var farin að sakna sauðaosts“
„Þetta byrjaði allt á því að ég var farinn að sakna þess að fá sauðaost,“ segir Ann-Marie Schlutz, rekstraraðili Matarvagnsins við Hengifoss í Fljótsdal, en hún rekur ættir austur til Þýskalands.
Matarvagninn sá hefur sannarlega slegið í gegn enda heimsækja tugþúsundir ferðamanna þennan fagra foss Austurlands á ári hverju. Gangan upp og niður getur tekið á og þá fátt betra en setjast niður og fá sér bita af en Ann-Marie býður upp á ýmislegt góðgæti eins og íslenska kjötsúpu, vöfflur að þýskum hætti auk heimatilbúins íss úr sauðamjólk. Hefur hún um tíma markaðssett sauðaísinn í verslunum með góðum árangri.
Fram kemur í viðtali N4 við Ann-Marie í þættinum Að austan, sem hófu göngu sína í gærkvöldi, að það hafi lengi blundað í henni að opna matarvagn en til að fá eitthvað bitastætt í gogginn áður en matarvagninn opnaði á þessum stað varð annaðhvort að halda til Skriðuklausturs ellegar Hallormsstaðar til að komast í matarbita.
„Í fyrra sáum við svo matarvagn sem var auglýstur til sölu og við sögðum við okkur að annaðhvort gerum við þetta núna eða aldrei.“
Fleira forvitnilegt um reksturinn við Hengifoss og lífið sjálft má finna á myndbandinu hér að neðan.