Vara við sameiningu og niðurfellingu embætta á landsbyggðinni

Lögfræðingar á Norður- og Austurlandi vara eindregið við sameiningu og niðurlagningu embætta héraðsdómstóla, sýslumanna og skattstjóra og segja alvarlega grafið undan þjónustu við íbúa landsbyggðarinnar með hugmyndum þar um. Lögfræðingarnir mótmæla því að núverandi tímabundið efnahagsástand sé notað sem átylla til að koma að tillögum sem fyrst og fremst munu færa umsvif og þjónustu frá landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins.

lawyer.jpg

Á aðalfundi Félags lögfræðinga á Norður- og Austurlandi, sem haldinn var á Egilsstöðum 24. október síðastliðinn, var eftirfarandi ályktun samþykkt:

  

,,Aðalfundur félags lögfræðinga á Norður- og Austurlandi mótmælir eindregið og varar við framkomnum hugmyndum um sameiningu og niðurlagningu ýmissa mikilvægra embætta sem  nú starfa á landsbyggðinni.  Með þeim tillögum, sem að þessu sinni snúa að héraðsdómstólum, sýslumönnum og skattstjórum, er alvarlega grafið undan þjónustu við íbúa landsbyggðarinnar og lífsgæði þar skert, í flestum tilfellum án þessa að líkur séu á að öðrum og jákvæðari árangri yrði náð.

Félag lögfræðinga á Norður- og Austurlandi vill ennfremur árétta, að nái tillaga um sameiningu héraðsdómstóla fram að ganga, er fyrirsjáanlegt að mjög muni fjara undan þeim lögmannsstofum sem nú starfa á landsbyggðinni en þeim fjölgaði er núverandi dómstólaskipan var tekin upp. Mjög mikilvægt er, að sem víðast á landsbyggðinni bjóðist heimamönnum öflug og vönduð lögmannsþjónusta sem stenst fyllilega samjöfnuð við það sem gerist annars staðar á landinu.  Með framkominni tillögu er grundvellinum kippt undan þessum mikilvæga þætti víða á landsbyggðinni.

 

Félag lögfræðinga á Norður- og Austurlandi vill sérstaklega andmæla því, að núverandi tímabundið efnahagsástand sé notað sem átylla til að koma að tillögum sem fyrst og fremst munu færa umsvif og þjónustu frá landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins."

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.