Vegglistaverk tekur á sig mynd á Djúpavogi
Listaverk, sem sýnir svipmyndir frá fyrri tíð á Djúpavogi, er farið að taka á sig mynd á svokölluðum Kallabakka þar. Verkið verður fullmótað síðar í mánuðinum.Það er listamaðurinn Stefán Óli Baldursson sem málar verkið en hann hefur miklar reynslu af gerð stórra útilistaverka. Hann byrjað að draga útlínur á vegginn á þriðjudag en verkið á að vera tilbúið fyrir Cittaslow-daginn, síðasta sunnudag september.
Verkið er málað á stóran hvítan vegg á Kallabakka, sem stendur neðan við Bakkabúð. Veggurinn blasir við úr byggðinni á Vörðu og frá Hótel Framtíð.
Gauti Jóhannesson, fulltrúi sveitarstjóra á Djúpavogi, segir vegglistaverkið unnið fyrir styrk sem Samband sveitarfélaga veiti árlega til menningarstarfs í jaðarbyggðum. Að þessu sinni hafi heimastjórn lagt til að lífgað yrði upp á Kallabakka. Fenginn hafi verið listamaður í verkið og lagt upp úr að verkið hefði skírskotun og tengsl við Djúpavog.
Verkið sýnir svipmyndir frá mannlífi á Djúpavogi og byggir meðal annars á gömlum ljósmyndum. „Fólk hefur sagt mér að það sé þegar farið að þekkja einstaklinga á myndunum svo sú nálgun sem lagt var upp með virðist vera að nást fram,“ segir Gauti.
Mynd: Dagur Björnsson